Starfsmaður í hlutastarf óskast.
 
Starfsmaður óskast til að sinna litlum viðvikum fyrir fyrirtæki sem sér um útleigu á farangursskápum fyrir ferðamenn, www.luggagelockers.is.
Starfið felst aðallega í að svara símtölum frá viðskiptavinum vegna vandamála sem upp koma en einnig getur starfsmaður þurft að mæta á staðinn til að laga eitthvað sem hefur farið úrskeiðis, t.d. endurræsa posa á skápum, losa út farangur sem hefur fest í skápunum eða annað.
Einungis er um að ræða um 10-15 símtöl í mánuði og eitt til tvö skipti sem þarf að mæta á staðinn.

Um er að ræða verktakavinnu en viðkomandi þarf ekki að hafa vsk númer fyrir verktakagreiðslur undir 1.milljón á ári.
Launin eru umsemjanleg.

Viðkomandi aðili þarf að vera ábyrgur, sveigjanlegur, liðlegur, eiga gott með mannleg samskipti, vera handlaginn, geta beitt rökhugsun og starfa sjálfstætt.
Þetta myndi líklega henta vel háskólanema eða aðila sem er mikið á ferðinni og getur tekið símtöl á daginn.

Upplýsingar veitir Valgeir Bjarnason í gegnum info@luggagelockers.is eða síma 8211120